Samheldni átakssjóður var stofnaður af frumkvæði Samherja með það skýra markmið að sameina íslenskt atvinnulíf í öflugu átaki til að bæta þjónustu og stuðning við fólk með fíknisjúkdóma og aðstandendur þeirra.
Átakssjóður um bætta þjónustu við fólk með fíknisjúkdóma
Með stofnun sjóðsins leggur Samherji fram öfluga kjölfestu með 20 milljóna króna árlegu framlagi næstu fimm árin. Sú skuldbinding skapar traustan grunn fyrir mikilvægt átak sem miðar að því að efla meðferðarúrræði og bæta líf og framtíðarmöguleika fólks sem glímir við fíknivanda. Vonin er að framtakið hvetji fleiri fyrirtæki og aðra bakhjarla til þátttöku og verði þannig öflugur vettvangur fyrir samfélagslega ábyrgð í verki þar sem þörfin er mest.
Á næstu mánuðum, fram til september 2026, verður leitað eftir þátttöku íslenskra fyrirtækja og annarra sem vilja leggja verkefninu lið. Markmiðið er að safna 200 milljónum króna til viðbótar við stofnframlag Samherja og skapa öflugan fjárhagslegan grunn til að efla meðferðarúrræði fyrir fólk með fíknivanda.
Söfnunarmarkmið
Fram til september 2026 stendur yfir fjáröflun á vegum sjóðsins þar sem leitað verður eftir stuðningi íslenskra fyrirtækja. Markmiðið er að safna 200 milljónum króna til viðbótar við stofnframlag Samherja til að styrkja uppbyggingu meðferðarúrræða fyrir fólk með fíknivanda.
Söfnunarráð Samheldni
Einar Logi Vignisson
Svanhildur Þórsteinsdóttir
Patricia Bono
Björgvin Páll Gústavsson
Helen Breiðfjörð
Valgeir Magnússon
Baldvin Þorsteinsson
Heildarfjárhæð
Með samstilltu átaki er stefnt að því að heildarfjármagn til úthlutunar verði yfir 300 milljónir króna yfir 5 ára tímabil.
Úthlutun
Fyrsta úthlutun úr sjóðnum er áætluð í september 2026.
Þegar söfnunarmarkmiðinu hefur verið náð verður hægt að ráðast í markvissar fjárfestingar í uppbyggingu meðferðarúrræða þar sem þörfin er mest.
Samheldni hefur verið stofnað sem almannaheillafélag.
Biskup Íslands er verndari sjóðsins
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, hefur tekið að sér að vera verndari sjóðsins.
Vilt þú styrkja sjóðinn?
Verkefni sem þegar hafa verið valin
SÁÁ – Stuðningur við fjölskyldur og ungmenni
Ráðist verður í að bæta verulega umgjörðina í kringum fjölskyldur þar sem börn eða ungmenni glíma við fíknivanda. Með betri umgjörð og skjótri aðstoð við fjölskyldur er hægt að hafa afgerandi og jákvæð áhrif á framtíð þessara ungmenna.
Hlaðgerðarkot – Smáhýsi til sjálfstæðrar búsetu
Við Hlaðgerðarkot verða reist smáhýsi sem skapa öruggt milliskref fyrir fólk að lokinni meðferð. Þar geta íbúar byggt upp sjálfstætt heimili á sama tíma og þeir njóta áfram stuðnings frá meðferðarstöðinni áður en þeir hefja sjálfstæða búsetu að fullu.
Verkefnið, sem ber heitið Brú út í lífið, er ætlað að styðja við einstaklinga sem hafa misst, eða aldrei öðlast, getu til að búa sjálfstætt og auðvelda þeim farsæla endurkomu út í samfélagið.
Meðferðarheimilið Krýsuvík – Ný álma og 20 ný rými
Reist verður ný álma við meðferðarheimilið í Krýsuvík sem mun fjölga gistirýmum um 20 og er það veruleg stækkun. Sem stendur eru yfir 150 manns á biðlista eftir að komast að í meðferð í Krýsuvík.
stjorn@samheldni.is