Samheldni hefur verið stofnað sem almannaheillafélag.
Hvernig er sótt um í sjóðinn?
Sjóðurinn styrkir afmörkuð, tímabundin átaksverkefni eða ný úrræði sem geta bætt þjónustu við fólk með fíknisjúkdóma og aðstandendur þeirra. Til þess að sækja um styrk þarf að senda inn ítarlega umsókn þar sem eftirfarandi kemur fram:
Lýsing á átakinu
Hvaða afmarkaða verkefni á að ráðast í og hver eru markmið þess?
Áhrif á þjónustuna
Hvernig mun verkefnið breyta og bæta þjónustu við fólk með fíknisjúkdóma?
Fjármögnun
Hvernig er áætlað að önnur fjármögnun verkefnisins muni fara fram (ef við á)?
Umsóknir og fyrirspurnir
Umsóknir ásamt fylgigögnum skal senda rafrænt á netfangið stjorn@samheldni.is.
Þegar hefur verið ákveðið að úthluta í 3 verkefni; hjá SÁÁ, Hlaðgerðarkoti og Krýsuvík.
Vilt þú styrkja sjóðinn?
stjorn@samheldni.is