Átakssjóður um bætta þjónustu
við fólk með fíknisjúkdóma

Samheldni átakssjóður var stofnaður að frumkvæði Samherja með það að markmiði að sameina íslenskt atvinnulíf í öflugu samfélagsátaki til stuðnings fólki með fíknisjúkdóma og aðstandendum þeirra. Sjóðurinn styður verkefni sem bæta þjónustu, styrkja meðferðarúrræði og skapa raunveruleg tækifæri til betra lífs.


Samherji leggur grunn að sjóðnum með 100 milljóna króna stofnframlagi, greiddu með 20 milljóna króna árlegu framlagi næstu fimm árin. Með þeirri skuldbindingu verður lagður traustur grunnur að uppbyggingu verkefna sem geta skipt sköpum fyrir fólk með fíknivanda. Vonin er að framtakið hvetji fleiri fyrirtæki til að taka þátt og sýna samfélagslega ábyrgð í verki.

Þar sem þörfin er mest


Til að tryggja að fjármunir nýtist sem best funduðu fulltrúar sjóðsins með helstu meðferðaraðilum landsins og kortlögðu hvar þörfin væri mest. Fjármunum sjóðsins verður beint til verkefna sem styrkja meðferðarúrræði þar sem fjármögnunarþörfin er brýn og líklegt er að framlagið skili sem mestum samfélagslegum ávinningi.

Áhersla á afmörkuð verkefni


Samheldni styrkir ekki almennan rekstur meðferðarúrræða. Þess í stað leggur sjóðurinn áherslu á afmörkuð verkefni og innviðafjárfestingar sem auka getu úrræða til að þjónusta fleiri eða betur, auk þess að styðja ný verkefni sem ella kæmust ekki til framkvæmda vegna skorts á fjármagni.

Skýr forgangsröðun

Í upphafi verður megináhersla lögð á verkefni sem styðja við börn og ungt fólk annars vegar og hins vegar fólk sem glímir við alvarlegasta fíknivandann. Að mati stjórnar sjóðsins er þar brýnust þörf og þar geta markvissar fjárfestingar haft mest áhrif til lengri tíma, bæði fyrir einstaklinga, fjölskyldur þeirra og samfélagið í heild.

Samheldni byggir á þeirri sannfæringu að þegar atvinnulífið sameinar krafta sína megi skapa raunverulegar og varanlegar breytingar fyrir fólk sem þarf mest á stuðningi að halda.

Stjórn sjóðsins

Í stjórn Samheldni átakssjóðs eru:
Anna María Kristinsdóttir mannauðsstjóri Samherja
Einar Logi Vignisson Framkvæmdastjóri RÚV sölu
Jón Ólafur Halldórsson formaður SA
Valgeir Magnússon stjórnarformaður PiparTBWA, formaður stjórnar
Sunneva Ósk Guðmundsdóttir framleiðslustjóri ÚA

Varamaður: Marta María Winkel Jónasdóttir

Samheldni hefur verið stofnað sem almannaheillafélag.

Vilt þú styrkja sjóðinn?

stjorn@samheldni.is